Færsluflokkur: Bloggar
25.6.2009 | 01:13
Áfram alla leið
Átti góða kvöldstund með familíunni og kollega mínum Magnúsi Ingólfssyni og Sigrúnu konu hans. Fórum á hvern staðinn eftir öðrum en enduðum á hótelinu þar sem allt annað var fullt. Þar var hins vegar maturinn frekar dýr og ekki vel úti látinn. Þó heillaðist ég töluver af svartsfuglsreimunum sem hann Magnús pantaði. Mér datt í hug að ef allt mannkynið væri svona matgrant eins og hann Magnús myndi hungur og hallæri vera úr sögunni. Maður myndi borða eina húsaflugu að morgni og vera saddur. Þá yrði sagan af manninum sem mettaði fimm þúsund á einum fiksi ekki merkileg. Meðan við sátum þarna datt Gunnlaugur inn og voru þá fulltrúar Borgó orðnir þrír á staðnum. Gunnlaugur var á suðurleið með hóp sem hann var að leiðsegja á sínum heimaslóðum. Og ég sem var að vona að hann myndi leiðsegja mér um sín æsku tún.
Sólsetrið var hrein frábært í kvöld. Sólin settist bakvið jökulinn. Það var eins og eldur mætt ís. Reyndi að mynda það en það tókst ekki.
Á morgun heldur ferðin áfram með vindinn í fangið geri ég ráð fyrir að vera 7 til 10 tíma að hjóla á Djúpavog. Gæti gert það á þremur með meðvind. Þetta verður bara skemmtilegt.... vona ég.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.6.2009 | 17:20
Hjólið komið næstum því í lag..
Bloggar | Breytt 25.6.2009 kl. 01:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
24.6.2009 | 13:33
Góður dagur á Höfn á góðum staða sem heitir Hafnarnes
Er í pásu frá hjólalátum. Fallegt veður og fögur fjallasýn hér á Höfn í dag. Hefði viljað sjá þessa skriðjökla í gær þegar ég hjólaði Mýrarnar. Þar var algert úrhelli. Ég gerði þau mistök að setja ekki strax upp vatnshelda vetlinga og var orðinn æði loppinn á höndunum. Beygði því inn að Brunnhóli og fék að hlýja mér þar og setja upp rétt föt. Mæli með ísnum hjá þeim. Hann er heimatilbúinn og kemur í ýmsum litum og bragðtegundum. Þegar nær Höfn dró lyfti skýjahulu nokkuð og gerði góða fjallasýn.
Ég gisti í Hafnarnesi rétt utan við bæinn. Þar er öll aðstaða og þjónusta til fyrirmyndar. En vinninginn hefur þó útsýnið á þessum fagra stað. Húsfreyjan hefur verið einkar hjálpleg. Hún meira að segja þvoði af mér! Held að þjónustan gerist ekki betri.
Ég á stefnumót við Ludwig hjólaviðgerðarmann klukkan tvö. Hann ætlar að stilla gíra og laga afturdekkið fyrir mig. Ætti að gera þetta sjálfur en finnst betra að setja þetta í hendur fagmanna finnst þeir eru á staðnum. Familían kemur í dag og verður með mér næstu tvo daga. Það kemur sér vel að geta látið þau ferja kerruna yfir Þvottárskriðurnar. Þar er 12 km kafli ómalbikðaur og ég er feginn að þurfa ekki að hjóla það með kerruna í eftirdragi. Hefði reyndar verið hagstætt að hjóla í dag á Djúpavog. Sunnanáttin hefði borið mig þessa 99 km fljótt og örugglega. Í staðinn hjóla ég þetta á morgun í rigningu og mótvind. En maður verður líka að fá að njóta sín og hvílast pínulítið.
Hjólamennskan í fyrradag var hrein frábær. Hugsa að ég eigi ekki eftir að fá jafn góðan meðbyr í þessari ferð og þá var. Ég gisti í Gerði um nóttina og er það eini staðurinn sem ég hef ekki verið ánægður með. Mér fannst skrítið að vera í tréhúsi þar sem ekki var reykskynjar eða slökkvitæki og lekt klóset! Enginn spegill á klóseti. Sannast sagna dapurt. Hvar eru þeir sem eiga að hafa eftirlit með svona hlutum? Í matsalnum var fullt af einhverju kvikmyndagerðarfólki sem drakk og reykti ofan í gesti og gangandi. Mæli sem sé ekki með Gerði sem gististað. Tók eftir því að þegar ég skrifaði um staðinn í dagbókina mína urðu mér á þau mistök að skrifa Greni í staðinn fyrir Gerði. Hins vegar hef ég verið á gistiheimilinu Hala sem er næsti bær við. Þar eru hlutirnir til fyrirmyndar. Borðaði einmitt hjá þeim í fyrradag í Þórbergssetrinu. Mjög gott hlaðborð og allur maturinn þeirra eigin framleiðsla. Silungur marineraður og grafinn úr fiskeldinu þeirra og lambið úr högum þeirra. Svona á þetta að vera. En bestu einkunn hingað til fær húsfreyjan á Hafnarnesi. Það bræðir mann alltaf pínulítið þegar fólk bíðst til að þvo af manni :o)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.6.2009 | 19:26
Kominn einum degi fram yfir!
Sæl öll, ég komst ekki til að blogga í gær. Það var frábær dagur. Sól og sterkur meðvindur. Ég naut ferðarinnar til hins ítrasta. Stoppaði á Núpsstað og tók Filipus tali. Hann er 99 ára og sér enn um sig sjálfur. Fer allra sinna ferða á Subarónum. Hélt áfram í Skaftafell en þar var kaldaskítur svo ég ákvað að fara að skála jöklarannsóknarfélagsins á Breiðamerkursandi. Stoppaði í Freysnesi til að blogga en gat ekki vistað færsluna - því var ekkert blogg frá mér í gær. Hitti Kristínu bróðurdóttur mína í Freysnesi. Hún var á ferð með Danna og krökkunum. Eftir smá stopp lagði ég í hann. Var með mótvind út að Hofsnesi en bullandi meðvind eftir það. Skálinn sem ég ætlaði að gista í var fullur af útlendingum svo ég ákvað að stefna beint á Hala í Suðursveit. Vindurinn var lens megnið af leiðinni en verð að viðurkenna að síðustu 10 km voru frekar erfiðir enda búinn að hjóla 130 km þennan dag og taka tvöfalda dagleið. Gisti að Gerði um nóttina. Í morgun var komin bullandi rigning og rok. Lét mig samt hafa það og hjólaði með vindinn í fangið þessa 65 km á Höfn í Hornafirði. Er á leið í sund en ætla taka frí á morgun. Mun blogga nánar um síðustu tvo daga í kvöld eða á morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.6.2009 | 21:43
Kominn í náttstað...
Það fór nú þannig að ég ákvað að fara ekki nema um 15 km í viðót og setti mig niður á Hörgslandi þar sem er tjaldstæði með sturtu. Mig langaði lengra og hafði í huga laut eina við bergvatnsá fargra. En þar sem ég var ekki með neinn mat ákvað ég að tjalda hér. Hér get ég keypt morgunmat í fyrramáli. Er alla vega búinn að stytta ferðina á mrogun um þessa 15 km þannig að það eru ekki nema 50 sem ég þarf að hjóla. Það er gott þar sem ég er að fara inn á eitt fallegasta svæði landsins og vel þess virði að stoppa til að taka myndir. Spáin er góð fyrir morgundaginn. Hagstæðir vindar en meir af skýjum. Það er svo sem ekki slæmt þar sem ég er frekar brunninn eftir daginn í dag. Brann á höndum en það sem meira er á höfði. Hef náttúrulega aldrei áður verið sköllóttur í sólinni.
Mér var hugsað til þess í dag þegar ég fór Mýrdalssandinn í fyrsta sinn. Þetta var sumarið 1982 eða 1983. Við vorum þrjú í blá Escordinum árgerð 1973. Kom í Vík og ætlaði að stoppa en sá þá að það voru 20 rútur við Víkurskálann. Ákvað að halda áfram. Það var bjart og fallegt yfir sandinn að líta og ég óks sem leið lá. Þegar við komum á móts við Hjörleifshöfðan var eins og hendi væri veifað og hann rauk upp með dimmum sandstormi. Ég sá ekki einus sinni fram fyrir húddið. Sandurinn smaug inn um allt og Rósa sem var þá þriggja ára skreið undir teppi í aftursætinu. Held að hún muni þetta enn. Eftir mikinn barning var Escordinn hættur að ganga hægaganginn. En áður en við komust út út kófunu keyrðum við fram á einn sem hafði drepið á sér. Lakkið var allt farið af hliðinni sem snéri upp í vindinn. Ég batt taug í hann og dró hann að Hrífunesi. Þegar ég gekk inn í gamla söluskálann að Hrífunesi var það fyrsta sem ég heyrði í útvarpinu að Múrdalssandur væri lokaður vegna sandfoks. Þess vegna voru allar rúturnar við Víkurskála. Hann hafði bara dottið niður í hálftíma akkúrat þegar okkur bar að. Escordinn hóstaði og stundi þar til að blöndungurinn var blásinn út á Klaustri og ferðinn var haldið áfram í Skaftafell. Allir gluggar voru mattir sem og ljós, króm og lakk. Ég skipti um ljós og framrúðu og átti þennan bíl í tvö ár í viðbót.
Í Skaftafelli tók ekki betur við. Samfeld rigning í 48 tíma að víisu í logni. Vandinn var sá að við áttum ekki himin á tjaldið og ég hafði tekið með byggingarplas sem ég festi við stögin með klemmumm. Hávaðinn í regndopunum var ærandi þessa 48 tíma. Til að bæta gráu ofan á svart skaðbrenndi ég mig á hendinni þegar ég var að reyna að elda á ónýtum prímus. Þetta er eftirminnilegasta og skemmtilegasta útilega sem ég hef farið í.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.6.2009 | 15:03
En einn frábær dagur
Ég er kominn á Klaustur og tók þessi 70 km ferð aðeins tvo og hálfan tíma. Veðrið var hreint frábært. Sól og góður meðbyr. Hún Kolbrún Hjörleifsdóttir á Vík hefur ábyggilega soðið einhvern töfraseið til að redda þessu veðri. Ég er eiginlega sannfærður um að hún sé göldrótt.
Fékk mér að borða í Skaftárskál og hitti hana Pálínu Pálsdóttur nemanda minn. Hún var held ég nokkuð undrandi á þessu flakki á mér. Eina sem ég get kvartað undan er krían sem goggaði mig til blóðs þegar ég kom inn Á Klaustur. Ætti kannski að nota þennan hjálm sem ég er að dröslast með. Hann verður örugglega á höfðinu þegar ég fer um heimkynni skúmsins á Breiðamerkursandi. Það eru víst 6000 pör sem verpa þar. Stærsta skúmavarp á norðuhveli jarðar.
Þegar ég kom að skálnum stóðu þar tveir frakkar með hjólagræjur líkar mínum. Þeir höfðu hjólað frá Keflavík um Kjöl og svo austur fyrir og sögðust á leið til Víkur. Ég sagði þeim að þeir yrðu ekki sviknir af náttúrufegurðinni. Þér voru í flottum peysum sem stóða á Íslandlsleiðangurinn 2009 (á frönsku) og svo kort af Íslandi fyrir neðan sem sýndi leiðina. Ég fór að hugsa að ef til vill hefði ég átt að láta hana Rósu mína útbúa svona galla á mig. Mér fannst ég sannast sagna frekar óprófessional við hliðina á þessum mönnum þar sem ég stóð í Boratspandexgallanum og gula vestinu. Stolt mitt var þó endurheimt þegar ég sá þessa þorpara lauma hjólum sýnum á rútuna til Víkur. Það er þá ekki búningurinn sem gerir menn að alvöru hjólamönnum. Jæja, nóg í bili. Ætla að bæta við eins og 30 km áður en ég set upp tjald og fer að sofa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.6.2009 | 16:00
Kominn á Vík
Ferðalagið frá Skógum að Vík gekk vel. Þetta voru bara 30 km og var ég því mjög feginn að hafa tekið þessa auka 50 km í gær. Hefði orðið að hjóla 70 km með mótvind frá Hvolsvelli að Vík.
Byrjaði á því að heimsækja vin minn Þórð Tómasson þjóðháttafræðing og safnstjóra að Skógum. Þar voru einnig fyrir Sigríður og Hans Martein. Hans hjólaði reyndar hringinn 1991 og öfundar mig mikið af því að vera gera þetta. Mér var tekið vel af þeim þremmenningunum og boðið upp á kaffi og með því á samgöngusafninu. Ég hef hitt þetta fólk oft í leiðsögn en einnig heimsótt safnið vegna rannsókna sem ég hef verið að vinna á ættarsögu minni. Langalanga afi minn Hermann Elías Jónsson var sýslumaður á Velli í Rangavallasýslu. Hann var ættaður frá Ísafirði en langalangamma var frá Álfhólahjáleigu rétt sunnan við Hvolsvöll.
Sólheimasandur skartaði því fegursta sem hann átti. Alaskalúpínan var í fullum blóma, vindur ekki mjög sterkur og bjart þótt skýjað væri. Það var frekar háskýjað svo ég sá vel til fjalla og jökla. Þegar kom í Mýrdalinn fór að hvessa og rigna og fór að sækjast hægar. Brekkan sunnan við Reynisfjall var erfið og varð ég að ganga hana með hjólinu. Vindurinn í fangið. Huggaði mig við það að þetta væri síðasta brekkan næstu 600 km. Renndi mér svo niður í Mýrdalinn. Hefði viljað halda lengra og viðhalda forskoti gærdagsins en rokið var of mikið og hann spáir meðvind á morgun svo ég lét staðar numið hér. Þakka Múkka á Edduhótelinu Vík fyrir að hleypa mér í tölvu. Gæti reyndar útskýrt þetta viðurnefni en það væri ósangjart gagnvart honum :o)
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.6.2009 | 08:42
Þá er að leggja í hann á ný
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.6.2009 | 22:29
Tvær myndir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
19.6.2009 | 22:16
Ó þessi fallegi dagur - Kominn að Skógum
Hreint frábær dagur að kvöldi kominn. 105 km að baki. Í það heila búinn með 162 km sem er meiri en 10% af þeim 1370 km sem hringurinn er. Hjólaði í sjö tíma í dag. Frá Selfossi að Skógum. Eftir að Landsvegmótum var náð tók við hreint frábær meðbyr. Á 40 km hraða var logn. Vindurinn var beint í bakið og á þeim hraða fór ég jafn hratt og vindurinn. Ég stoppaði til að taka af mér peysuna því mér var orðið svo heitt en þá var hávaða rok! Þegar kom undir Eyjafjöll lygndi og við tók tær fegurð. Sjórinn á hægri hönd en jökullinn á vinstri. Oft hef ég ferðast um Ísland og dáðst að fegurð þess en aldrei hefur hún birst mér með jafn dásamlegum hætti og í dag. Maður fær allt aðra sýn á landið að fara svona hægt yfir. Sjá afstöðubreytingar í landslaginu og birtubreytingar. Þetta var hreint æði. Var alveg rasandi.
Ætlaði að vera á farfuglaheimili í kvöld en það var upptekið og datt því inn á Edduna. Borðaði rosa góða kvöldmat. Heit sturta var sannarlega vel þegin eftir þennan dag. Tók reyndar lítið af myndum í dag. Ég var of upptekinn við að njóta fegurðarinnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)