Færsluflokkur: Vísindi og fræði

Lunar eclipse in Reykjavík December 21st 2010 – Tunglmyrkvi í Reykjavík 21. desember 2010

I took the fallowing pictures of the lunar eclipse that we had here in Reykjavík on December 21st. At the beginning I exposed the pictures for the bright side. The shadow is black but the bright side is correctly exposed. After the eclipse became full I exposed for the dark part leaving the bright side over exposed.

Ég tók þessar myndir af tunglmyrkvanum 21. desember. Í byrjun myrkvans lýsti ég myndirnar fyrir björtu hliðarnar og er þá skugginn svartur. Eftir að myrkvinn var byrjaður lýsti ég fyrir dökku hliðina og verður þá lýsta hliðin yfirlýst.

 

 


 


Winter solstices, December 21st 2010 - Vetrarsólstöður 21. desmeber 2010

The following video is based on 1000 photographs that I took on top of Perlan yesterday December 21st this year’s shortest day (Winter solstices). I started at 10AM and continued until 16PM. Unfortunately, the winds were high which causes a slight flicker.  In addition the titles for some reason did not come out right. 

Meðfylgjandi myndband byggir á 1000 ljósmyndum sem ég tók ofan af Perlunni á vetrarsólstöðum í gær föstudaginn 21. desember. Mikill vindur olli titringi á vélinni sem veldur smá flökti en það er samt fallegt að sjá sólina hnita þennan stutta buga á þessum stysta degi ársins. Ég byrjaði 10 um morguninn eftir að hafa myndað sólmyrkvann og var að til 4 síðdegis. Af einhverjum sökum brenglaðist titillinn.

 

 

 


Nýtt myndband

Er að fikta við time laps myndatöku og tók þessar myndir af sólsetrinu í dag og bjó til kvikmynd.Því miður dó rafhlaðna áður en myndatöku var lokið. Þetta er ein mynd á 10 sek set í filmu með einni mynd á 6 sek.

 


01.12.2010 The bike trip next summer – Hjólaferðin næsta sumar

Hjólatúrar 2009, 2010 og 2011Planning for next summer’s trip is well under way. The idea is to bike the interior and a part of NE-Iceland that I did not bike when I did the circle road in 2009. The map shows my route around Iceland in 2009 (green line), my trip around the western part of Iceland in 2010 (blue line) and the intended trip through the interior and back next summer (yellow line). The circle road was 1400 km, the west fjords 1100 km and I estimate that the trip next summer will be between 900-1000 km. This is however on mountain roads with unabridged glacial rivers and more extreme weather conditions. I will not be pulling the trailer but instead I will load all the gear on the bike. This means that I need to lose more weight than previously and this will also call for a stronger mountain bike. I am not sure if I will have time to do this in one go since my son will be joining me and he has a demanding schedule next summer. So we might do this in three legs. I have already started the preparations by hiking every weekend and swimming daily. In the past two weeks I have taken of 3-4 kg. Think I have another 20 kg to go.

 

Skipulagning fyrir hjólatúr næsta sumars er hafin. Nú er hugsunin að hjóla hálendið þ.e.a.s. hjóla norður Kjöl, síðan fyrir Melrakkasléttuna og til baka Sprengisand. Kortið sýnir leið mína hringinn sumarið 2009 (græna línan), Vestfirðina og Snæfellsnes í sumar (blá línan) og fyrirhugaða ferð næsta sumar (gula línan). Hringurinn var 1400 km, Vesturlandið 1100 km og hálendið og NA-land áætlað 900-1000 km. Þetta eru náttúrulega hálendisvegir með óbrúaðar jökulár og allra veðra von, sérstaklega fyrri og seinni part sumars.  Nú verður kerran góða ekki með í för heldur verður farangur allur borinn á hjólinu. Þetta þýðir að ég verð að vera léttari í byrjun ferðar en í hinum tveimur auk þess sem ég verð að fá mér kröftugt fjallahjól.  Líklega geri ég þetta ekki í einum rykk þar sem sonur minn kemur með og hann er nokkuð önnum kafinn í vinnu og öðru í sumar. Líklega verða þetta tveir til þrír leggir t.d. Kjölur svo Melrakkasléttan og síðan Sprengisandur. Þetta skýrist þó þegar fram líða stundir. Ég er þegar byrjaður að koma mér í form. Búinn að ganga á fjöll undanfarnar helgar og farinn að synda daglega enda 3-4 kg farin og þá eru bara 20 kg eftir. Gæti verið erfið jól.


New photos

I just put som photos of the volcano in my albume. Hope you will enjoy them..

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband