5.7.2010 | 14:55
The trips statistics so far – ferðin hingað til
I have today biked 697,73 km and have still 397 to do thus making the total trip 1095 km
Mér reiknast til að ég sé búinn að hjóla 697,73 km og eigi eftir 397 km (fyrir Snæfellsnes) þannig í það heila verði ferðin 1095 km
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.7.2010 | 14:29
A day of rest at Bjarkalundur - Hvíldardagur í Bjarkalundi
We decided take one day of rest here in Bjarkalundur. We will continuo tomorrow
Ákváðum að taka dags hvíld í Bjarkalundi og hjóla áfram á morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.7.2010 | 14:22
What is the difference between a hill and mountain pass? – Hver er munurinn á heiði og háls? (4. 06.10)

As I stated in my last blog it was a cold and beaten group that woke up this morning in the middle of Vattarfjordur (which could be middle of nowhere). The wind was still strong but now it was also raining. We took down camp, made coffee and some oatmeal and headed out again. With stiff muscles and sore joints we biked in Skálmafjörð and up the hill Klettháls the 346 m climb was a slow one. At the top we soughed shelter in the emergency hut stationed there (photo). After a good lunch we continued. Now our luck changed for the better. The roads were good and the wind came down. It would have been a lovely day if not for all the mountain passes we had to cross. Our total ascent for the 3d and 4th was 2348 m! most of which was done on the forth when we passed over three mountain passes. On the last pass Lárus had his fifth flat tire. He had just finished fixing it when his wife Særún came to pick him up. The group is back to three. The rest of us made it to hotel Bjarkalund at about 9:30, just in time to have dinner before the kitchen closed.
Fram var komið að það var kaldur og hrakinn hópur sem vaknaði í lautinni góðu að morgni þess 4. Við tókum niður tjöld í rigningu átum morgunmat og mjökuðum okkur af stað. Kletthálsinn var seinfarinn fyrir þreytta ferðalanga en andinn lyftist eftir hádegismat í neyðarskýlinu upp á hálsi (mynd). Nú fór lánið að leika við okkur. Vegir góðir og bakvindur en síðan lygnt. Drullan var aðeins til ama in Gufufjörðin og var búnaður orðinn æði skítugur eftir þann fjörð. Eftir Klettháls kom Ódrjúgsháls og síðan Hjallaháls. Spurninginn er hins vegar hver er munurinn á háls og heiði? Heildarhækkun okkar þessa tvo síðustu daga var 2348! Við höfum því ríflega hjólað upp Hvannadalshnúk. Það sprakk í fimmtasinn hjá Lárusi við rætur Hjallaháls og stóð á endum að þegar hann var búinn að laga kom Særún kona hans að sækja hann. Hann þarf að eiga tíma með börnum og barnabörnum sem eru komin í heimsókn frá Danmörk. Við þrjú hjóluðum áfram að Bjarkalundi þar sem við náðum inn rétt fyrir lokun á eldhúsi.
Bloggar | Breytt 12.7.2010 kl. 23:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.7.2010 | 13:34
Beaten by the wind – Vindurinn hefur vinninginn (3.06.10)
We started our bike ride at 11 from Rauðsdal where we had staid over night. MaryAnne (photo) joined us for her first day. Little did she know what the day had in stored for her. It was tough riding the bikes into Vantsfjord. The wind was blowing hard against us. Once we started heading out the fjord things went better but the road was under construction for the next 16 km which limited our speed. Going in the next fjord we were hit badly by the wind. I estimate that the wind speed may have been as high as 20 m/s. We made little headway under these conditions barely maintaining a speed of 4-8 km/h. The progress was greater when biking out the fjords with the wind in our backs. I had hoped that we would make it to Klettháls mountain pass but that proofed to be an optimistic view. After cycling 4 fjords we were worn-out and decided to put up camp. The problem was that there was no shelter to be had. Eventually we found a small basin were we put up two tents. I and MarryAnne slept outside but Thelma and Lárus were in the tents. At 5 in the morning it started raining consistently and my outer bag started leaking. I was forced to crawled into Larus tent to keep dry. It was a cold and wet group that woke up the following morning. We biked 60 km this day in 6 hours and rested for 3 hours.
Við hófum för klukkan 11 frá Ruðsdal þar sem við höfðum gist um nóttina. Vindurinn var stífur á móti okkur inn Vatnsfjörðinn. MaryAnne (mynd) hjólaði með okkur í fyrsta skipti og vissi ekki frekar en við hvað dagurinn bar í skauti sér. Eftir hádegismat í Fólkalundi tók við ferð út Vatnsfjörðinn yfir svæði þar sem standa yfir vegaframkvæmdir vegurinn var erfiður á köflum en samt ekki eins slæmur og hann var fyrir tveimur vikum þegar ég fór hér um með hóp af túristum. Ég fékk fjallahjólið í gær en eftir af hjóla á því niður Dynjandisheiði ákvað ég að halda mig við Track 7300 götuhjólið. Mér finnst það fara betur með líkamann en hitt. Þetta reyndist óvitlaus ákvörðun því ágætlega gekk að hjóla á malarvegum ef hægt var farið og varlega. Reyndar hefur hjólið staðist raunina betur í sumar en í fyrra sumar. Engir teinar hafa slitnað og gírar hafa staðist álagið. Það er að vísu full hágírað fyrir brekkurnar, hálsa og heiðar en gott á jafnsléttunni. Ég lét setja teina af sterkustu gerð í hjólið og setti dempara í hnakkinn. Þetta virðist hafa virkað. Þegar inn Kjálkafjörðinn kom tók við beljandi vindur í fangið líklega nærri tuttugu metrum á sekúndu. Við þessar aðstæður gátum við rétt haldið 4-8 km/h. Við þurftum að stíga hjólin niður brekkurnar! Ferðin út firðina gekk betur. Gallinn var að það var meira inn en út í þessum fjörðum. Eftir Kjálkafjörð tók við Kerlingar- og Mjófjörður og loks Vattarfjörður. Ég hafði gert mér vonir um að ná í neyðarskýlið á Kletthálsi og gista þar en sá að það var borin von. Við ákváðum að gista í Vattarfirði en fundum enga laut sem veitti skjól. Að lokum fannst smá bolli sem við gátum hent upp tveimur tjöldum. Thelma var í öðru en Lárus í hinu. Ég og MarryAnne sváfum undir berum himni með hlífðarpoka utan um svefnpokana. Um 5 fór hann að rigna nokkuð stíft og tók þá pokinn minn að leka. Ég skreið þá inn í tjald hjá Lárusi. Það var kaldur og hrakinn hópur sem vaknaði í lautinni þennan morgun.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)