21.6.2009 | 21:43
Kominn í náttstað...
Það fór nú þannig að ég ákvað að fara ekki nema um 15 km í viðót og setti mig niður á Hörgslandi þar sem er tjaldstæði með sturtu. Mig langaði lengra og hafði í huga laut eina við bergvatnsá fargra. En þar sem ég var ekki með neinn mat ákvað ég að tjalda hér. Hér get ég keypt morgunmat í fyrramáli. Er alla vega búinn að stytta ferðina á mrogun um þessa 15 km þannig að það eru ekki nema 50 sem ég þarf að hjóla. Það er gott þar sem ég er að fara inn á eitt fallegasta svæði landsins og vel þess virði að stoppa til að taka myndir. Spáin er góð fyrir morgundaginn. Hagstæðir vindar en meir af skýjum. Það er svo sem ekki slæmt þar sem ég er frekar brunninn eftir daginn í dag. Brann á höndum en það sem meira er á höfði. Hef náttúrulega aldrei áður verið sköllóttur í sólinni.
Mér var hugsað til þess í dag þegar ég fór Mýrdalssandinn í fyrsta sinn. Þetta var sumarið 1982 eða 1983. Við vorum þrjú í blá Escordinum árgerð 1973. Kom í Vík og ætlaði að stoppa en sá þá að það voru 20 rútur við Víkurskálann. Ákvað að halda áfram. Það var bjart og fallegt yfir sandinn að líta og ég óks sem leið lá. Þegar við komum á móts við Hjörleifshöfðan var eins og hendi væri veifað og hann rauk upp með dimmum sandstormi. Ég sá ekki einus sinni fram fyrir húddið. Sandurinn smaug inn um allt og Rósa sem var þá þriggja ára skreið undir teppi í aftursætinu. Held að hún muni þetta enn. Eftir mikinn barning var Escordinn hættur að ganga hægaganginn. En áður en við komust út út kófunu keyrðum við fram á einn sem hafði drepið á sér. Lakkið var allt farið af hliðinni sem snéri upp í vindinn. Ég batt taug í hann og dró hann að Hrífunesi. Þegar ég gekk inn í gamla söluskálann að Hrífunesi var það fyrsta sem ég heyrði í útvarpinu að Múrdalssandur væri lokaður vegna sandfoks. Þess vegna voru allar rúturnar við Víkurskála. Hann hafði bara dottið niður í hálftíma akkúrat þegar okkur bar að. Escordinn hóstaði og stundi þar til að blöndungurinn var blásinn út á Klaustri og ferðinn var haldið áfram í Skaftafell. Allir gluggar voru mattir sem og ljós, króm og lakk. Ég skipti um ljós og framrúðu og átti þennan bíl í tvö ár í viðbót.
Í Skaftafelli tók ekki betur við. Samfeld rigning í 48 tíma að víisu í logni. Vandinn var sá að við áttum ekki himin á tjaldið og ég hafði tekið með byggingarplas sem ég festi við stögin með klemmumm. Hávaðinn í regndopunum var ærandi þessa 48 tíma. Til að bæta gráu ofan á svart skaðbrenndi ég mig á hendinni þegar ég var að reyna að elda á ónýtum prímus. Þetta er eftirminnilegasta og skemmtilegasta útilega sem ég hef farið í.
Athugasemdir
Gaman, gaman að fylgjast með þér á ferð þinni um landið og kominn á sögulegar slóðir, man þessa sögu frá því við vorum á leiðinni á Birnudalstinda, þú ert vonandi með eyðimerkursandgleraugun með þér, gps-ið svo þú getir leiðbeint þér í gegn ef þú lendir í sandstormi og vasaljósið á mors-stillingu =Þ
Nafni Ingi Þórarinsson (IP-tala skráð) 22.6.2009 kl. 02:23
Hvar heldur þú að þú verðir sirka 9-15 júlí? Er alvarlega að spá..
Thelma H. Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 22.6.2009 kl. 15:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.